Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Litlar upplýsingar um litlu mig:o)

  • Nafn: Alma

Klukkan

Innskráningar kubbur

15. september 2008 klukkan 15:36
http://www.almasigrun.blogg.is - ný síða síðan jan 08.

Áramótakveđjur!

31. desember 2007 klukkan 12:07

Áramótakveðjur að norðan:)

Erum fyrir norðan yfir áramótin, þegar búin að fara í tvö fjölskylduboð síðan við komum heim.  Eitt hjá Hödda fjölskyldu þar sem var skemmt sér mikið yfir lambakjöti og actonary.  Síðan var haldin kalkúnaveisla hjá Tobbu móðursystur sem allir komu saman og elduðu.  Mikið gaman og gott:) - Ég, Höddi og Garðar fórum svo í Trivial hjá og með Mæju og Birkir sem voru einkar samstillt í Trivial.. hehe:)
Fáum dýrindismat í kvöld, nautakjöt, bakaðar kartöflur, alvöru norðlenskur bernaise, sveppasalat..mm og humar í forrétt:)   Planið er að fara á sýningu og brennu í bænum í kvöld - AKUREYRI - bænum, en ég veit ekki með veðrið því það er ekki beint áramótavænt..

Reyndum við eitt hringadróttinsspil sem er til hér, í gær en gáfumst upp, fórum öll í eldgamalt trivial í staðinn sem var mjög fyndið því spurningarnar er afar gamlar.
Búumst við að fara suður á miðvikudag - vonum að veðrið verði gott:)

en bið að heilsa öllum og skemmtið ykkur vel í dag, kveld og nótt:)

Gleðileg nýtt ár!

kv. Alma Sigrún

Ferđasagan..

28. desember 2007 klukkan 13:11

Við erum komin heim frá Svíþjóð - komum í gær um hálf 11 leytið að íslenskum tíma, þreytt og lúin eftir ferðina sem var mjög skemmtileg:)

Ferðasagan:

Laugardagur
Ég og Höddi vöknuðum snemma og við hittumst öll uppá Álfhólsvegi í pizzu og lögðum síðan af stað um eitt leytið á flugvöllinn.  Allt gekk vel við innritun og gaman að sjá flugstöðina í nýjum búningi, svolítið stórt, sérstaklega þegar leið á tímann, en það seinkaði nú fluginu um hálftíma, og stutt var í brottför því þá var bara tvær vélar eftir og flugstöðin er stór og fólk bara hvarf í hana.
Það var líka eitthvað verslað því Kolbrún og Bjarni versluðu sér jólagjöf, vídíókamera sem var svo mikið notuð til að dokumentera ferðina:)
Flugið út var fínt en við sátum fremst við útgangin sem er ekki sniðugt því það er kalt þar.  Við komum svo loks til Copenhagen airport um hálf tíu að dönskum tíma en þá komust við að að ein taskan hans Bjarna var týnd! Og í henni fyrir utan fötin hans, var jólamaturinn og hangikjötið.  Afar leiðinlegt að týna henni og það var seinkun á okkur en náðum þó lest yfir til Svíþjóðar en þegar við komum til Eslöv þá stoppaði lestin og lestarstjórinn sagði að lestin væri biluð og væri að vinna í henni - allt kom fyrir ekki, lestin var dregin í burtu og við þurftum að bíða í ískaldri lestarstöð svöng og þreytt um hálf tvö í klukkutíma eftir næstu lest.  Vorum lokst komin til Kristianstadt um hálf 3 og komin í rúmið um 4 leytið - þreytt og lúin.

Þorláksmessa
Sváfum út og kíktum svo á Kristianstadt og í búðir.  Fann mér kápu sem varð svo jólagjöfin frá Mömmu og Pabba - kápan er brún og flott, fegin að hafa loksins fundið mér kápu! Keypti mér svo líka lítinn kjól eða mussu, eða síðan dökkgulan bol, veit eiginlega ekki hvað á að kalla hann, hehe. Keypti líka hvítan trefill og húfu í stíl.  Höddi keypti sér svo peysu.
Heljarinnar vesen að hringja útum allt og leita að töskunni - sem lenti nú næstum allt á greyjið Dodda sem var einkar hjálplegur við alltsaman.

Aðfangadagur
Borðuðum möndlugraut og Kolbrún vann möndlugjöfina sem var púsl sem við vorum þegar byrjuð á því það var stórt og reyndist síðar vera afar erfitt. 
Við lágum í leti fyrir framan sænska sjónvarpið en það er alltaf sýnt á hverju ári teiknimyndir klukkan 3, alltaf næstum sömu teiknimyndir og Doddi sagði okkur að venjan er að allir safnist fyrir framan sjónvarpið og horfi á þær.  Höddi fór í hjólreiðatúr um Kristianstadt á hjólinu hans Dodda um það leyti og sagði einmitt að það hafði verið engin á ferðinni.
Í jólamatinn var svo sænsk skinka, með tilheyrandi meðlæti, brúnum kartölfum og jólasósuni góðu sem tókst vel:) Í forrétt var köld avókadósúpa sem Doddi gerði og var mjög góð! - Í eftirrétt var svo súkkulaðimúss með hindberjum sem var alveg æði, og er að finna í eftirréttarbók Hagkaups:) og svo voru auðvitað pakka í eftireftirrétt - takk fyrir það:):)
Ég og Höddi, Kolbrún og Bjarni fórum svo öll í jólamessu kl.hálf tólf sem var skemmtileg, í kirkju frá 1627 sem var mjög, mjög flott.

Jóladagur
Borðuðum afganga og um kvöldið var sænskur jólamatur, frikadellur og rauðbeðusalat sem var æði.  Láum í leti svo um daginn, púsluðum, horfðum á sænskt sjónvarp og fórum í Xbox360 sem Doddi átti.  Við Höddi fórum svo í göngutúr um Kristianstadt, sáum leikhúsið, kirkjugarðinn og gengum um gamla bæjinn sem er mjög flottur. Ég, Höddi, Doddi og Tinna fórum svo út á pöpparölt í Kristiansstadt um kvöldið sem var gaman en ekkert minni læti en á Íslandi.

Annar í jólum
Ég og Höddi fórum um hádegið til Malmö og hittum Steinunni. Hún sýndi okkur Malmö, löppuðum um miðbæ Malmö, fórum í búðir - ég keypti mér pils:) í H&M og við sáum Malmö í jólaljósum.  Elduðum okkur svo nautakjöt og bernaise um kvöldið

Fimmtudagur
Fórum og skoðuðum gamlan kastala en þar var sýning frá ljósmyndara sem var fyrir nokkrum árum staddur í Afríku og heyrði þar lagið með Bob Dylan, Hard Rain og fékk þá hugmynd að taka myndir af fólki sem lifði af náttúrurhamfarir eða var að lifa nátturuhamfarir, við hverja setningu í laginu - myndasýningin var býsna mögnuð og flott. Síðan fórum við Höddi yfir til Köben og hittum þar Kolbrúnu, Bjarna og Tinnu. Við fórum síðan á strikið og það var afar gaman að koma til Kaupmannahafnar, NÆSTUM eins og að komast heim, maður kannaðist við sig og borgin var flott í jólaljósunum.  Keypti mér annað pils og þrjá boli.  Borðuðum síðan á veitingastaðnum RizRaz og fórum svo á flugvöllinn.  Þar gekk allt vel í innritun og flugum af stað til Íslands um tíu mínutur yfir átta um kvöldið.   Úr flugvélinni, sat ég á millli Tinnu og manns frá Asíu sem var einkar skrítinn og ókurteis.  Þegar við nálguðust Ísland þá sáum við ljósin frá suðurlandsundirlendini frá flugvélinni, tunglið, stjörnurnar og norðurljósin, mjög flott:) 

Ferðin var mjög vel heppnuð og skemmtum við okkur mjög vel:)  Við Höddi förum svo norður á morgun yfir áramótin

Jæja nóg í bili, ætla pakka aftur - hehe - þvílíkt ferðalag á manni:)

kv.Alma

Jul i Sverige

25. desember 2007 klukkan 22:40
Bestu kvedjur fra Sveden:)  Gasalega erfitt ad skrifa a saensk lyklabord , kann ekkert a thetta , hehe!

Erum buin ad liggja i leti, lappa um baejinn, fara i budir, spila tölvuleiki, pusla, borda mikid:) og skemmta okkur vel.  Forum i messu a adfangadag kl.half tolf og i thessari otrulegu kirkju , fra 1627, var alveg dolfallinn yfir henni.  Förum til Steinku a morgun mikid fjör:):)

Vona ad allir hafi att gud jul og vona ad eg sjai sem flesta um aramotin, verd tho fyrir nordan..

skrifa meira thegar vid komum heim , omögulegt lyklabord... hehe 

Gledileg jul!

Bestu jolakvedjur fra Sveden!

Alma

Svíţjóđ á morgun - seinasta bloggiđ í bili..

21. desember 2007 klukkan 10:04

21. des


Tíundi var Gluggagægir,
grályndur mann,
sem laumaðist á skjáinn
og leit inn um hann.

Ef eitthvað var þar inni
álitlegt að sjá,
hann oftast nær seinna
í það reyndi að ná.

 


21.des í dag og mikið að gera! Þarf að sækja skóna mína í viðgerð, fara með Peru í pössun, þurfum að kaupa seinustu jólapakkana, pakka seinustu jólapökkunum inn og pakka fyrir morgundaginn.  Mikið að gera auk þess að við förum út á morgun og því verður þetta seinasta bloggið í nokkra daga.  Eigiði nú öll Gleðileg jól, borðiði mikið og slakið á:) 

Við ætlum allir, Svíþjóðarfararnir, að hittast heima hjá Kolbrúnu og Bjarna á morgun kl.1 svo verður lagt í hann.  Eigum flug kl.17:10 út til Köben.  Þaðan förum við í lest yfir til Svíþjóðar og svo til Kristianstadt til Þórðar, bróðir Hödda.  Pera fer á meðan í pössun hjá Ömmu Huldu, hans Hödda, og vona nú að hún verði stilltur lítil gári á meðan við erum í burtu.  Hún er nefnilega svoddan unglingur - hún er á gelgjustiginu.. hehe :)

Gleðileg jól!

Jólakveðjur
Alma og Hörður - svíþjóðarfarar

20.des..

20. desember 2007 klukkan 09:46

20. des


Níundi var Bjúgnakrækir,
brögðóttur og snar.
Hann hentist upp í rjáfrin
og hnuplaði þar.

Á eldhúsbita sat hann
í sóti og reyk
og át þar hangið bjúga,
sem engan sveik.


20 des í dag og 2 dagar þar til við förum út. Höddi er farinn á bókasafnið því hann fer í próf á morgun og í dag ætla ég að þvo þvott, fara í sund, fá mér eitthvað gott að borða:) og baka súkkulaðismákökur eftir hádegi:). Ætla fara svo með kort til Göggu og Torfa og Gerði frænku. Svo þarf ég að erindast fyrir Hödda.

Vorum að skoða töskumálin í morgun og það lítur út fyrir að við þurfum bara að taka eina stóra tösku með út svo ég get tekið heila 23 kílóa tösku með heim, Steinunn! Var að kíkja á vefinn varðandi hámarksþyngd farangurs en fann ekkert nema það væri max 23 kíló en getum þá miðað við það. Veit einhver meira um hámarksþyngd farangurs út úr Leifsstöð??

Bætt við 13:35
Fór niður í bæ og ætlaði að erendast fyrir Hödda og fékk stæði en var ekki með klink á mér - óþolandi þegar það gerist! Ætla að baka á eftir :o) súkkulaðismákökur:) mm namminamm


Jólakveðjur:)

Alma Sigrún

Gleđileg jól

19. desember 2007 klukkan 15:53
19. des


Skyrjarmur, sá áttundi,
var skelfilegt naut.
Hann hlemminn o´n af sánum
með hnefanum braut.

Svo hámaði hann í sig
og yfir matnum gein,
unz stóð hann á blístri
og stundi og hrein.




Nokkrir dagar í jólin - 19.des í dag.  Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt.  Fékk pakka sendan frá Brekkutröð í dag.  Í honum voru jólapakkar:), smákökur og jólakort. Afar gaman að fá svona pakka sendan þegar maður fer ekki heim yfir jólin - :) mín er mjög glöð:) Hlakka mikið til að fara út á laugardag - þetta verður algjört ævintýri.  Hlakka mikið til að hitta Steinunni í Malmö og hitta svo Þórð, bróðir Hödda aftur.  hmmm

Pera er algjör pera - hún er sæt! Hún fer í pössun yfir jólin til Ömmu Huldu, þarf víst að þrífa hjá heimasætuni fyrst - hún er soddan sóði - kúkar um allt búr og skilur eftir hýði af matnum sínum útum allt í búrinu.

Gott að fá smákökur að heiman - það minnkar heimþránna aðeins:) takk:) mamma:)!
Ætla þó að baka hálfa uppskrift af súkkulaðismákökum svo við Höddi getum nartað aðeins í þessar:) hehe

Ragnhildur vinkona er að koma í heimsókn:):) Gott að hittast fyrir jól og svona

Jólakveðjur!

Alma Sigrún

búin í prófum!

18. desember 2007 klukkan 15:28
Eintóm gleði - er búin í prófum og það er eintóm gleði...
Var í prófi í heimssögu fyrir 1815 en það var svolítið erfitt. Eiginlega afar erfitt.. en er nokkuð viss að ég nái en held að ég fái enga frábæra einkunn sem er fúlt því ég var að reyna halda þeim í ofari kantinum..

En ekkert sem ég get gert núna..

Förum á laugardag og það er mikið að gera þangað til - klára senda jólakort, klára kaupa og pakka inn jólapakka, þvo allann þvottinn, sendast með jólapakka, pakka fyrir Svíþjóð, slaka á aðeins fyrir fram imbann og tölvuna og gera ekki neitt, fara með Peru til Ömmu hans Hödda í pössun yfir jólin, gera ekki neitt.  Já það er mikið að gera:)

jæja, ætli ég fái mér ekki eitthvað að borða..

ŢjóđarbókHLAĐAN

17. desember 2007 klukkan 10:52
Hlöðubúar eru nú afar algengir í íslensku menntasamfélagi.  Þeir fara út í skjóli myrkurs og sjást ekki heima við fyrr en myrkur er skollið á aftur.  Hlöðubúar er taldir lifa aðallega á pylsum, nesti og finnst ruslfæði best að borða.  Nú er verið að reyna koma sumum út í samfélagið á ný og býst þessi hlöðubúi að koma inn í samfélagið á ný á morgun kl.12. Megi þessum hlöðubúa ganga vel í því erfiða prófi sem verður að taka ef ganga á út í lífið og dagsljósið á ný. 
  Hlöðubúin fór út í skjóli myrkurs í seinasta sinn á þessu ári sem er brátt að líða.  Hlöðubúin er búin að vera mjög duglegur að læra hlöðufræðin sín svo hann geti nú farið og leikt sér út í dagsljósi á ný. 

hlöðulegar kveðjur
Alma hlöðubúi

Ađventutónleikar og Brahmanismi

15. desember 2007 klukkan 23:20
Var að koma af aðventutónleikum hjá Karlakór Reykjavíkur - Tengdó er í honum.  Tónleikarnir voru magnaðir, mjög jólalegt og mér leið eins og litlu jólabarni þegar ég kom út:) - sem ég er auðvitað á þessum árstíma - en þetta magnaði upp góða jólatilfinningu.  Einnig sungu allir saman í seinasta laginu og allt var þetta sætt og jólalegt..:)

Akkúrat vika þangað til við Hörður, Tinna, Kolbrún og Bjarni munum vera lent í Kaupmannahöfn og sitjum í lest á leið til Þórðs, sem býr í Kristianstadt í Svíþjóð.  Gaman gaman og spennandi:) Það verður svaka fjör en skrítið að eyða jólunum ekki fyrir norðan.. þó munum við Hörður fara norður 29.des svo það er einhver sárabót.  Svíþjóðarferðin verður svaka ferð og svaka gaman:) Hlakka mikið til að hitta Steinunni og sjá vistina og svoleiðis.  Gaman verður líka að hitta Þórð aftur:)

Var á bókasafninu í dag en var búin að áætla að fara yfir 6 kafla af 20 í dag en náði aðeins að fara yfir 3 og hálfan! Gekk hægt því ég sökk mér of djúpt í Brahmanisma en það var trú á Indlandi fyrir krist.  Hindúismi "þróaðist" síðan úr Brahmanisma.  Brahmanismi er mjög áhugaverður og er í rauninni trúin á endurholgun, hina eilífu hringrás - endurfæðing sálarinnar og karma - manni er launað fyrir hið góða og hinu illa með illu.

Fer aftur á morgun en ætla reyna verða duglegri þá - Set mér það markmið hér og nú að vera búin að fara yfir 10 fyrstu kaflanna a.m.k.

Núna er það draumalandið..

Góða nótt..

Alma

Könnun

Prjónar ţú?

Frćgar tilvitnanir og málshćttir ađ mínu skapi

,, Ţađ er val okkar í lífinu sem gerir okkur ađ ţví sem viđ erum, miklu frekar en hćfni okkar." ( J.K Rowling)
,, All we have to decide is what to do with time that is given to us" (Tolkien)
,, What doesn't kill you only makes you stronger."
,, All that is gold does not glitter; not all those that wonder are lost" (Tolkien)
,, I don't know half of you as well as I should like; and I like less than half of you half as well as you deserve"(Tolkien)
,, Faithless is he that says farwell when the road darkens" (Tolkien)
,, One does not learn how to die by killing others" (Vicomte de Chateaubriand)
,, History will be kind to me for I intend to write it" (Sir Winston Churchill)
,, Better late than never" ( Titius Livius 59 f.kr. - 17.e.kr.)